http://www.myranaut.isVið hjá Mýranauti seljum aðeins fyrsta flokks ungnautakjöt.
Gripunum er slátrað í viðurkenndu sláturhúsi sem sér um að úrbeina og sérpakka kjötinu í neytendaumbúðir að óskum viðskiptavina.
Hægt er að panta allt frá 1/8 úr skrokk sem er á bilinu 20 - 25 kg af kjöti. Sama innihald er í 1/8 og 1/4 nema lundin fylgir ekki með. Verð á 1/8 er 3300.-kr/kg.
Í ¼ af skrokk er á bilinu 40–50 kg af kjöti sem skiptis í steikur, gúllas, hakkað kjöt og snitsel ef vill. Í hverjum pakka eru eftirfarandi steikur sem allar eru merktar með nafni og þyngd: entrecote, sirloinsteik, lund, ribeye, innralæri, flatsteik og klumpur. Viðskiptavinir okkar ákveða sjálfir það magn af hakki og gúllasi sem fer í hverja pakkningu. Algengasta magn í hverja pakkningu er 500 gr en það fer að sjálfsögðu eftir fjölskyldustærð. Verð 3100.-kr/kg.
Hægt er að fá hamborgara gegn vægu aukagjaldi. Hamborgararnir eru 115 gr að þyngd og er pakkað 5 saman í pakka.
Einnig er hægt að kaupa heila eða hálfa skrokka með beini.
Ungautakjöt 1/8, 1/4, 1/2 og heilir skrokkar úrbeinaðir og pakkaðir, 1/2 skrokkar á beini. Stakar steikur, hakk, gúllas og hamborgarar
Pantanir
Hægt að panta á heimasíðunni okkar eða í s. 8687204 eða senda tölvupóst á [email protected]
Opnunartími