Hraun er nyrsti bær á Skaga í Skagafirði. Á Hrauni reka hjónin Merete og Steinn sauðfjárbú með um 400 vetrarfóðraðar ær.
Merete framleiðir m.a. kindakæfu, grafið ærfille og ærhakk í Vörusmiðjunni á Skagaströnd, ásamt því að taðreykja hangikjöt í vottuðum reykkofa á Hrauni.
Einnig er hægt að panta meirnað lambakjöt, hlutað niður eftir óskum kaupanda. Panta þarf lambið tímanlega fyrir sláturtíð.
Vöruúrval og myndir má sjá á heimasíðunni: https://hraunafurdir.com/voruurval/
Pantanir
[email protected] / 847-0575
Opnunartími