Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Nýtt Ísland opnar í Reykjavík! http://www.holtsel.is/Saga íss nær aftur til fjórðu aldar fyrir Krist þegar Alexander mikli lá veikur með hita. Líflæknir

Nýtt Ísland opnar í Reykjavík!

Ísbúðin Ísland
Ísbúðin Ísland
http://www.holtsel.is/Saga íss nær aftur til fjórðu aldar fyrir Krist þegar Alexander mikli lá veikur með hita. Líflæknir hans brá á það ráð að setja ís saman við safa og ávexti og gefa Alexander til þess að reyna að ná hitanum niður. Upp frá því hóf Alexander að krefjast þess að fá drykki sína borna fram á klaka þótt sækja þyrfti klakann um langan veg til fjalla. Saga íss er slitrótt og til eru ennþá eldri sögur af því er klaka var blandað saman við safa.

Ísinn sjálfur þróaðist aðeins meira löngu síðar á Ítalíu þar sem farið var að gera tilraunir með að blanda ís, ávaxtasafa og mjólk saman. Á svipuðum tíma tók frystitækni stórstígum framförum í Bandaríkjunum, sem var nauðsynleg forsenda þess að ísinn eins og við þekkjum hann í dag yrði til. Þróun frystitækni hófst í byrjun nítjándu aldar en fyrsta ísvélin sem fór á markað var smíðuð árið 1851 í Baltimore í Bandaríkjunum. Í kringum aldamótin 1900 fór ísframleiðsla loks að taka stórstígum framförum þegar Ítalir tóku að flytjast til Bandaríkjanna, það leiddi jafnframt til þess að fjölbreytni íss jókst gífurlega. Ís varð almenn söluvara í Bandaríkjunum upp úr 1930 og var tæknin flutt til Íslands um þrjátíu árum síðar.

 

Hlédís Sveinsdóttir opnaði ísbúðina Ísland í Suðurveri  fimmtudaginn 28. jan. 2010.

Þar er boðið uppá hinn landsfræga rjómaís frá Holtseli og mjúkís frá Kjörís. Þetta er líklega í fyrsta skipti sem tveir ísframleiður selja vörur sínar saman í einni ísverslun hérlendis. En eins og allir vita er Kjörís fyrirtæki sem hóf starfsemi fyrir 40 árum. í Hveragerði. Kjörís var í upphafi fjölskyldufyrirtæki og nú tæpum fjörutíu árum seinna er það enn svo. Fyrirtækið kemur ekki aðeins til móts við viðskiptavini sína heldur hefur það jafnframt haldið tryggð við heimabæ sinn í Hveragerði. Þar hefur fyrirtækið stækkað og blómstrað og er nú veigamikill hluti af atvinnulífi bæjarins. Í upphafi var starfmannafjöldi 7 en nú hafa um fimmtíu manns  lífsviðurværi sitt af Kjörís sem dreifir og selur afurðir sínar til allra landshluta en fyrirtækið hefur yfir tíu frystibílum að ráða.

Í Holtseli hófst framleiðsla  26. apríl 2006 og var þar einnig unnið brautryðjandastarf eins og í Hveragerði nokkrum áratugum áður. Í Holtseli er framleiddur ís úr mjólkinni sem kýrnar á bænum leggja til og er þar bæði um að ræða mjólkur- og rjómaís. Þetta hafði ekki verið reynt áður hér á landi svo vitað sé að fullvinna mjólkina til ísgerðar heima á sveitabæ. Þegar mest er að gera á sumrin eru um 5 manns starfandi við ísgerðina og kaffihúsið.

Kjörísmenn hafa frá upphafi stutt við ísgerðina í Holtseli á ýmsan hátt og séð að þarna var komin skemmtileg viðbót við íslenska ísgerð. Opnunin á ísbúðinni hennar Hlédísar er trúlega besta dæmið um það að hægt sé að vera bæði í samkeppni og samvinnu á sama tíma.

Þ.F.

 

 




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf